Breska matvöruverslunarkeðjan Iceland hefur samþykkt að styrkja breska raunveruleikaþáttinn I'm A Celebrity ... Get Me Out Of Here með auglýsingum þegar þátturinn hefur göngu sína á ný í næsta mánuði, segir í frétt frá breska fagtímaritinu Media Week.

Þátturinn er sýndur á ITV-sjónvarpstöðinni og þetta er sjötta þáttaröðin. Ferðafyrirtækið First Choice var áður styrktaraðili þáttanna

Ekki hefur komið fram hve mikið Iceland mun greiða fyrir auglýsingarnar. Tæplega tíu milljónir áhorfenda horfðu reglulega á þáttinn í fyrra og jókst áhorf um 9% í 40% frá árinu 2004.