Farþegum Icelandair hefur fjölgað um 15% á milli ára
Farþegar Icelandair aldrei fleiri í febrúarmánuði – fraktflug Icelandair Cargo tekur við sér.
Icelandair flutti rúmlega 79 þúsund farþega í febrúar sl., sem er 16% fjölgun á milli ára en félagið hefur aldrei flutt svo marga farþega í febrúar mánuði. Þá hefur farþegum fjölgað um 15% á milli ára fyrstu tvo mánuði ársins.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair á síðasta ári nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009.

Sætanýting Icelandair í febrúar var tæp 71% sem er 4% aukning á milli ára í febrúar.

Enn fækkar farþegum Flugfélags Íslands

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 4% á milli ára í febrúar þegar félagið flutti rúmlega 25 þúsund farþega. Sætanýting félagsins dróst saman um 0,1% á milli ára í febrúar og var um 71%.

Farþegum Flugfélags Íslands fækkaði um 6% á milli ára í fyrra og hefur fækkað um 3% á milli ára fyrstu tvo mánuði ársins.

Mikil aukning í fraktflugi

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group dróst saman á milli ára í febrúar eða um 2%. Hér er átt við allar vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Nýting flugflotans jókst um 1% á milli ára á síðasta ári og hefur aukist um 6% á milli ára fyrstu tvo mánuði þessa árs en nýtingin í janúar var töluvert góð.

Fraktflug á vegum samstæðunnar jókst um 10% á milli ára í febrúar sem helst má rekja til aukinna umsvifa Icelandair Cargo. Samdrátturinn í fraktflugi á síðasta ári nam um 4% en aukningin á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs nemur 5% á milli ára.

Þá stóð nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar í stað á milli ára í febrúar en hefur aukist um 1% á milli ára fyrstu tvo mánuði ársins.