Icelandair flutti rúmlega 81 þúsund farþega í janúar sl., sem er 15% fjölgun á milli ára. Þá fjölgaði farþegum Icelandair um 14% á síðasta ári.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair á síðasta ári nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009.

Sætanýting Icelandair í janúar var tæp 66% sem er  tæp3% aukning á milli ára í janúar.

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 2% á milli ára í janúar þegar félagið flutti um 24.200 farþega. Sætanýting félagsins jókst þó um 1,4% á milli ára í janúar og var um 65%.

Farþegum Flugfélags Íslands fækkaði um 6% á milli ára í fyrra.

Aukning í nýtingu flugflota

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group jókst nokkuð á milli ára í janúar eða um 5%. Hér er átt við allar vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Nýting flugflotans jókst um 1% á milli ára á síðasta ári.

Fraktflug á vegum samstæðunnar jókst um 1% á milli ára í janúar ári en tvö fraktfélög eru í eigu samstæðunnar, Icelandair Cargo og Bluebird. Samdrátturinn í fraktflugi á síðasta ári nam um 4%.

Þá jókst nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar örlítið á milli ára í janúar, eða 1%.