Icelandair stefnir að því að fljúga til 32 áfangastaða í millilandaflugi sumarið 2021. Tenerife verður nýr áfangastaður í leiðakerfi Icelandair. Þá stefnir Air Iceland Connect að því að hefja áætlunarflug til Vestmannaeyja í innanlandsflugi næsta sumar.

Flugáætlun Icelandair og Air Iceland Connect fyrir árið 2021 er nú komin í sölu en hún er minni í sniðum en síðustu ár sökum áframhaldandi áhrifa heimsfaraldursins. Gert er ráð fyrir að heildarsætaframboð verði um 25-30% minna en sumarið 2019, eða 70 til 75% af sætarframboðinu þá.

Í dag var flugfélagið með eitt flug frá Keflavíkurflugvelli til Kaupmannahafnar og áætlar flugfélagið tvær brottfarir á morgun, til Boston og Amsterdam..

Gera ráð fyrir að aðlaga að eftirspurn þegar nær dregur

Uppbygging leiðakerfis Icelandair verður einfölduð næsta ár og áhersla lögð á lykiláfangastaði félagsins, en einföldun leiðakerfisins á að gera félaginu kleift að bregðast hratt við síbreytilegum markaðsaðstæðum en áfram er gert ráð fyrir að aðlaga þurfi framboð að eftirspurn eftir því sem fram vindur.

Eðli málsins samkvæmt er flugáætlunin háð því að áhrif COVID-19 fari minnkandi á mörkuðum félagsins í Evrópu og N-Ameríku og að fyrirkomulag landamæraskimunar hér á landi hafi ekki jafn takmarkandi áhrif á ferðalög og nú er raunin.

Félagið áætlar að fljúga til 22 áfangastaða í Evrópu, þ.e. Osló, Bergen, Kaupmannahafnar, Billund, Stokkhólms, Helsinki, Amsterdam, Parísar, Berlínar, Hamborgar, Frankfurt, Munchen, Genf, Zurich, Brussel, London, Glasgow, Manchester, Dublin, Madrid, Mílanó og Tenerife. Þá áætlar félagið að fljúga til tíu áfangastaða í N-Ameríku, þ.e. Boston, New York, Seattle, Minneapolis, Washington, Denver, Chicago, Toronto, Vancouver og Montreal. Félagið mun jafnframt fljúga reglulega til Alicante í leiguflugi.

Inneign vegna breytinga gildi í þrjú ár

Icelandair hefur uppfært bókunarskilmála félagsins með það að markmiði að auka sveigjanleika fyrir farþega enn frekar á óvissutímum. Félagið leggur höfuðáherslu á að koma viðskiptavinum sínum sem vilja ferðast á áfangastað þrátt fyrir að breytingar hafi orðið á flugáætlun. Ef flugi er aflýst býður Icelandair farþegum flug í gegnum aðra áfangastaði félagsins eða með samstarfsflugfélögum án auka kostnaðar.

Þeir sem ætla sér ekki að ferðast og flug hefur verið fellt niður geta auðveldlega gert breytingar á flugbókun án breytingargjalds, óskað eftir inneign sem gildir í þrjú ár eða endurgreiðslu. Allir farþegar sem eiga flug hjá félaginu á næstunni geta breytt flugbókun sinni hvenær sem er án þess að greiða breytingargjald eða óskað eftir inneign.

Þess ber að geta að endurgreiðsluferlar félagsins hafa nú verið uppfærðir og hefur félagið að mestu leyti lokið endurgreiðslu þess gríðarlega fjölda endurgreiðslubeiðna sem borist hafa á undanförnum mánuðum, eða yfir 90%. Þessar áherslur koma til vegna breyttra aðstæðna í flugheiminum á heimsvísu og það er, hér eftir sem hingað til, markmið Icelandair að bjóða viðskiptavinum sínum upp á góða, örugga og sveigjanlega þjónustu.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair segir að þrátt fyrir núverandi aðstæður vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sé mikilvægt að horfa til framtíðar.

„Við vinnum hörðum höndum að því að undirbúa viðspyrnuna svo við getum brugðist hratt við um leið og staðan breytist til hins betra. Flugáætlun Icelandair fyrir sumarið 2021 byggir á þeim forsendum að aðstæður á mörkuðum okkar séu farnar að batna, ferðatakmarkanir hafi verið rýmkaðar og að reglur á landamærum á Íslandi hafi ekki jafn takmarkandi áhrif á ferðalög og nú er,“ segir Bogi.

„Með enn sveigjanlegri bókunarskilmálum viljum við gera fólki kleift að bóka flug án þess að hafa áhyggjur – við komum öllum sem ætla að ferðast á áfangastað og leyfum breytingar á flugbókun hvenær sem er án auka kostnaðar.

Það er markmið okkar að tryggja öflugar flugsamgöngur til og frá Íslandi og yfir Atlantshafið. Þá höfum við fulla trú á því að Ísland verði áfram eftirsóttur áfangastaður ferðamanna og þess vegna er mikilvægt að tryggja að íslenskir ferðaþjónustuaðilar verði vel í stakk búnir til að taka á móti ferðamönnum á ný. Við ætlum að vera tilbúin um leið og aðstæður leyfa og leiða þá uppbyggingu.“