Icelandair hefur aflýst 7 flugferðum í dag vegna manneklu í áhöfn, að því er fram kemur á vef RÚV . Yfirvinnubann er í gildi hjá flugmönnum félagsins.

Ferðum til og frá Billund í Danmörku, Þrándheimi í Noregi og Helsinki í Finnlandi ferð til Björgvinjar í Noregi hefur verið aflýst. Þá hefur tveim ferðum til og frá Glasgow og Parísar verið seinkað.

Flugmenn Icelandair höfðu boðað vinnustöðvun á morgun og síðan frá þarnæsta föstudegi en Alþingi samþykkti lög á verkfallið síðastliðinn fimmtudag.