Tekin hefur verið ákvörðun að aflýsa alls 24 brottförum til og frá Evrópu á morgun, þann 23. janúar, vegna slæmrar veðurspár. Einnig er búið að taka ákvörðun um að seinka brottförum á flugi frá Bandaríkjunum til Íslands í kvöld. Nákvæm tímasetning brottfara mun liggja fyrir fljótlega, en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Aðrar brottfarir til og frá Evrópu eru enn sem komið er enn á áætlun þó gera megi ráð fyrir seinkunum á þeim. Raskanir á flugi Icelandair næsta sólarhringinn hefur áhrif á ríflega 3000 farþega.

„Starfsfólk Icelandair er þessa stundina að upplýsa farþega um þessar breytingar á flugáætlun vegna veðurs. Það er mikið álag á þjónustuveri Icelandair vegna þessa en við biðjum farþega um að sýna okkur biðlund en við erum að vinna í að finna ný flug fyrir alla okkar farþega. Við gerum okkar allra besta að koma viðskiptavinum okkar á áfangastað eins fljótt og hægt er með öryggi allra í fyrirrúmi. Allir farþegar verða sjálfkrafa endurbókaðir og ný ferðaáætlun verður send á netfang þeirra. Það er ekki nauðsynlegt að hafa samband við okkur nema ef nýja ferðaáætlun hentar ekki,“ segir Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, forstöðumaður þjónustu og upplifunar hjá Icelandair.

„Búist er við slæmu veðri næsta sólarhringinn og eru  farþegar beðnir um að fylgjast með upplýsingum frá Icelandair en það er ávallt hægt að fara inn á heimasíðu félagsins og fylgjast með á svæðinu "umsjón með bókun". Þar eru flugupplýsingar uppfærðar um leið og breytingar liggja fyrir og þar geta farþegar jafnframt uppfært netföng og símanúmer þannig að hægt sé að koma skilaboðum til þeirra hratt og örugglega."

Nú þegar er búið að aflýsa eftirfarandi flugum 23. janúar:

  • Flug FI532/FI533 til og frá Munchen
  • Flug FI568/FI569 til og frá Zurich
  • Flug FI520/FI521 til og frá Frankfurt
  • Flug FI554/FI555 til og frá Brussel
  • Flug FI430/FI431 til og frá Glasgow
  • Flug FI342/FI343 til og frá Helsinki
  • Flug FI306/FI307 til og frá Stokkhólmi
  • Flug FI318/FI319 til og frá Osló
  • Flug FI206/FI207 til og frá Kaupmannahöfn
  • Flug FI440/FI441til og frá Manchester
  • Flug FI416/FI417 til og frá Dublin
  • Flug FI 450/451 til og frá London Heathrow

Eftirfarandi flug fara í seinkun:

  • Flug FI470/ FI471 til og frá London Gatwick
  • Flug FI500/FI501 til og frá Amsterdam
  • Flug FI542/FI543 til og frá París, Charles De Gaulle
  • Flug FI204/ FI205 til og frá Kaupmannahöfn