Icelandair hefur boðað til fréttamannafundar nú á hádegi. Á fundinum verða kynntar umtalsverðar breytingar á flugáætlun félagsins á næsta ári segir í tilkynningu félagsins.

Jón Karl Ólafsson, forstjóri og Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair munu kynna breytingarnar, ásamt svæðisstjórum Icelandair erlendis,en þeir eru staddir hér á landi í dag til fundarhalda.