Icelandir hefur breytt störfum hjá hópi flugmanna og flugstjóra á fjögurra mánaða tímabili, frá 1. desember 2019 til 1. apríl 2020. Breytingarnar fela það í sér að 111 flugmenn færast niður í 50% starf og 30 flugstjórar verða færðir tímabundið í starf flugmanns. Í heildina starfa í dag tæplega 550 flugmenn og flugstjórar hjá félaginu. Er ráðist í þessar breytingar til að bregðast við kyrrsetningu Boeing 737-MAX flugvélanna, en félagið reiknar ekki með að taka vélarnar inn rekstur sinn fyrr en í byrjun næsta árs. Icelandair greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Þá segir félagið í tilkynningunni að það muni leggja höfuðáherslu á að lágmarka tjón félagsins og áhrif kyrrsetningarinnar á farþega og íslenska ferðaþjónustu. Félagið sé þegar í viðræðum við Boeing um að fá það fjárhaslega tjón sem hlotist hefur af kyrrsetningu vélanna bætt.

Tilkynningu Icelandair má sjá í heild sinn hér að neðan:

Eins og áður hefur komið fram gerir Icelandair ekki ráð fyrir því að taka Boeing 737-MAX flugvélar á ný inn í rekstur félagsins fyrr en í byrjun næsta árs. Upphaflega gerði félagið ráð fyrir níu slíkum vélum í flota sínum á þessu ári. Kyrrsetningin veldur jafnframt óvissu varðandi afhendingu fimm nýrra MAX véla sem áætlaðar voru til afhendingar snemma á næsta ári. Um er að ræða fordæmalausa stöðu sem hefur umtalsverð neikvæð áhrif á rekstur félagsins sem og flugáætlun í vetur. Óhjákvæmilega hefur þessi staða áhrif á áhafnaþörf félagsins og þarf félagið að bregðast við með því að aðlaga fjölda áhafnameðlima að flugflota félagsins.

Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hafa á þessu ári unnið saman að því að skapa tækifæri til þess að takast á við sveiflur í áhafnaþörf félagsins með öðrum leiðum en áður hefur tíðkast og nú þegar hafa störf tæplega 100 flugmanna tekið breytingum yfir veturinn.

Í ljósi áframhaldandi óvissu og til að lágmarka áhrif kyrrsetningar MAX vélanna á rekstur Icelandair, mun félagið grípa til frekari ráðstafana sem fela í sér tímabundnar breytingar hjá hópi flugmanna og flugstjóra á fjögurra mánaða tímabili, frá 1. desember 2019 til 1. apríl 2020. Aðgerðirnar felast í því að 111 flugmenn færast niður í 50% starf og 30 flugstjórar verða færðir tímabundið í starf flugmanns. Í dag starfa tæplega 550 flugmenn og flugstjórar hjá félaginu.

Hvað varðar stöðu mála vegna Boeing 737 MAX flugvéla, þá hefur yfirgripsmikið og vandað ferli, sem er í höndum alþjóðaflugmálayfirvalda, staðið yfir síðan vélarnar voru kyrrsettar fyrr á þessu ári. Sú vinna fer fram í samvinnu við Boeing og þau flugfélög sem eru með MAX vélar í rekstri og er það hagsmuna- og forgangsmál allra hlutaðeigandi að tryggja öryggi vélanna og koma þeim aftur í rekstur.

Icelandair mun, hér eftir sem hingað til, leggja höfuðáherslu á að lágmarka tjón félagsins og áhrif kyrrsetningarinnar á farþega og íslenska ferðaþjónustu. Félagið er þegar í viðræðum við Boeing um að fá það fjárhagslega tjón sem hlotist hefur af kyrrsetningu vélanna bætt.