Icelandair gerir ekki ráð fyrir Boeing 737 MAX vélum flugfélagsins á þessu ári. Félagið hafði áður gert ráð fyrir vélunum frá og með októberlokum. Icelandair hefur því aðlagað flugáætlun sína í samræmi við það og aðra þróun á markaði.

„Heildarsætaframboð félagsins í nóvember og desember verður aukið um tæplega 3% miðað við sama tímabil 2018 . Sætaframboð til Evrópu verður aukið töluvert, t.d. til Kaupmannahafnar, Dublin, Brussel og Berlínar. Heildarsætaframboð til Norður-Ameríku dregst hins vegar saman milli ára, sem skýrist aðallega af fækkun áfangastaða frá fyrra ári eins áður hefur komið fram. Þá verður Portland ekki hluti af vetraráætlun félagsins en flug þangað hefst aftur næsta vor. Þrátt fyrir þetta verður þó aukning í framboðnum sætum til ákveðinna áfangastaða í Norður Ameríku, svo sem Minneapolis, Vancouver, Denver og Orlando," segir í tilkynningu frá Icelandair.

Leigusamningur einnar af þeim fimm flugvélum sem félagið bætti við flota sinn í sumar, til að lágmarka tjón af kyrrsetningunni hefur verið framlengdur út október. Aðrir leigusamningar um flugvélar, sem gerðir voru vegna kyrrsetningar MAX vélanna, verða ekki framlengdir.

Icelandair hafði áður áætlað tjón vegna MAX kyrrsetningarinnar á þessu ári 140 milljónir miðað við að kyrrsetningin stæði út októbermánuð en viðbótaráhrif vegna þessara breytinga liggja ekki fyrir að svo stöddu. Icelandair á í viðræðum við Boeing um að fá allt fjárhagslegt tjón sem hlotist hefur af kyrrsetningu vélanna bætt.