Icelandair Cargo hefur gert samning við FedEx og TNT um flutninga á öllum þeirra vörum til og frá Íslandi. Samningurinn, sem er til þriggja ára, tekur gildi í byrjun árs 2020.

FedEx og TNT hafa sameinað starfsemi sína eftir kaup FedEx á TNT og stefna að því að auka umsvif sín hér á landi í samstarfi við Icelandair Cargo. FedEx er sem kunnugt er eitt af stærstu flutningafyrirtækjum í heimi, með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum.

Vegna samningsins verður nokkur breyting á flugáætlun Icelandair Cargo til Evrópu. Flug til Liege í Belgíu mun aukast verulega í ljósi þess að Liege er einn af aðal flugvöllum FedEx og TNT í Evrópu.

Breiðþoturnar bylting fyrir fraktflugið

Fraktvélar Icelandair Cargo munu fljúga sjö sinnum í viku til Liege í Belgíu og þrisvar sinnum í viku til East Midlands í Bretlandi. Þá býður félagið eftir sem áður upp á fraktþjónustu til allra áfangastaða Icelandair sem eru um 40 talsins.

Þess ber að geta að mikil bylting varð í starfsemi Icelandair Cargo eftir að Icelandair tók í notkun Boeing 767 breiðþotur þar sem þær vélar taka umtalsvert magn af frakt samhliða farþegaflugi. Nú eru fjórar slíkar í flota Icelandair. Icelandair Cargo áætlar að flytja tæplega 50 þúsund tonn af frakt á árinu sem er að ljúka, en af því fer um 60% með farþegavélum Icelandair.

Gunnar Már Sigurfinnsson
Gunnar Már Sigurfinnsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Gunnar Már Sigurfinnsson , framkvæmdastjóri Icelandair Cargo segir samninginn við FedEx og TNT vera einn þann stærsta sem Icelandair Cargo hefur gert.

„Aukið framboð á fraktþjónustu til meginlands Evrópu felur í sér aukin tækifæri fyrir viðskiptavini Icelandair Cargo, t.d. íslenska útflytjendur á sjávarafurðum. Þeirra markmið er að koma vörum sínum ferskum á markað í Evrópu með skjótum og öruggum hætti,“ segir Gunnar Már.

„Með yfirvofandi útgöngu Breta úr Evrópusambandinu felast tækifæri í því að auka flug til meginlands Evrópu, þar sem stór hluti af þeim sjávarafurðum sem flogið var til Bretlands fór samdægurs áfram til meginlands Evrópu. Aukin tíðni til Belgíu tryggir útflytjendum áfram örugga leið á mikilvæga markaði í Evrópu. Samhliða því að efla fraktþjónustu til og frá meginlandi Evrópu verða umsvif Icelandair Cargo áfram mikil í flutningum til og frá Norður Ameríku.“