Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair og Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar opnuðu í dag endurnýjaðan innritunarsal í Leifsstöð. Breytingar urðu lýsingu, innréttingum og útliti salarins.

Mynd sem ljósmyndarinn Ari Magg tók á Vatnajökli setur mikinn svip á salinn en myndin þekur allan vegginn fyrir aftan innritunarborðin sem eru 25 ára gömul.