Icelandair hefur ákveðið að framlengja flugáætlun félagsins til Washington í haust og verður flogið til 16. október, en upphaflega var áætlað að fljúga til 13. september.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en félagið mun hefja áætlunarflug til Washington um miðjan maí nk.

Þá kemur jafnframt fram að Icelandair muni auka tíðni fluga með því að fjölga úr fjórum í fimm flug á viku á tímabilinu frá 29. júní til 31. ágúst.

„Eftirspurnin í Washingtonflugið hefur verið góð og einhver sú sterkasta sem við höfum séð á nýrri flugleið í Norður-Ameríku, bæði hér á heimamarkaði og fyrir vestan,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair í tilkynningunni.“

Í heild verða flogin 93 flug til/frá Washington á þessu ári, sem er 35% aukning frá því sem upphaflega var áætlað. Síðasta flugið verður farið eftir Iceland Airwaves helgina í október, en hátíðin er vel þekkt og vel sótt frá Washington svæðinu.  Þá kemur einnig fram að árið 2012 er stefnt að því að lengja flugtímabilið og bæta við tíðni.