Icelandair mun auka tíðni til Manchester og Glasgow á næsta vetri í fjögur flug á viku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en jafnframt verður gerð sú breyting að flug til borganna tveggja verður sameinað og fyrst flogið til Manchester í hverri ferð og síðan höfð viðkoma í Glasgow á leið til Íslands. Á undanförnum árum hefur verið flogið tvisvar í viku til borganna að vetri til. Flug samkvæmt þessari nýju áætlun hefst 25. september næstkomandi.

Fram kemur að flugin verða á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum. Brottför verður frá Keflavíkuflugvelli kl. 8:00 að morgni, frá Manchester kl. 12.25 og frá Glasgow kl. 14.20. Lent verður á Keflavíkurflugvelli kl. 15.40 eða á svipuðum tíma og önnur Evrópuflug Icelandair.

„Með því að auka tíðnina og fljúga til beggja borga í sömu ferðinni getum í senn aukið þjónustu við viðskiptavini og tryggt hagkvæmni í rekstri, segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair í tilkynningunni.

„Á undanförnum árum hefur flugið til þessara borga byggst að verulegu leiti á ferðum íslenskra farþega, en vegna gengisþróunar hefur mjög dregið úr utanferðum Íslendinga og við leggjum nú aukna áherslu á erlenda ferðamenn. Með breytingunni nú aukum við sveigjanleika fyrir þá sem eiga erindi til og frá þessum borgum og auk þess tengjum við þessar tvær borgir við Ameríkuflug okkar og getum boðið mjög hagstætt flug t.d. til Seattle og Boston í Bandaríkjunum.“