Icelandair hefur uppfært flugáætlun sína fram til 15. september þar sem útlit er fyrir að kyrrsetning Boeing 737 MAX flugvéla muni vara lengur en áður hafði verið áætlað, að því er fram kemur í t ilkynningu frá Icelandair. Flugfélagið áætlar að sætaframboð félagsins á tímabilinu 15. júlí til 15. september muni dragast saman um 5% frá því sem áður var áætlað. Engu síður sé 10% framboðsaukning á sama tímabili milli ára. Vinna varðandi breytingar á flugáætluninni mun hefjast á næstu dögum og munu starfsmenn Icelandair hafa samband við viðkomandi farþega.

Icelandair hefur þegar tekið þrjár leiguvélar í notkun vegna kyrrsetningarinnar og unnið er að lokafrágangi samnings um leigu á einni Boeing 767-300 vél til viðbótar.

Í tilkynningunni frá Icelandair segir að félagið leggi nú megináherslu á fjölgun farþega á mörkuðunum til og frá Íslandi og eigi rúmlega 30% fleiri farþegar bókað með félaginu til Íslands á tímabilinu júní – ágúst en á sama tíma í fyrra.

„Fjárhagsleg áhrif kyrrsetningarinnar eru óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda," segir í tilkynningunni.