Vegna frekari samdráttar í eftirspurn og bókunum undanfarna daga vegna útbreiðslu Covid-19 kórónaveirunnar frá Wuhan í Kína, mun Icelandair draga úr framboði á flugi í mars og apríl umfram það sem áður hefur verið tilkynnt.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá fyrir helgi ákvað félagið þá að fella niður 80 flugferðir á þessu tímabili, en nú hyggst félagið bæta í. Segir félagið ráðstafanirnar gerðar til að draga úr áhættu og fjárhagslegum áhrifum á félagið.

Útbreiðsla COVID-19 veirunnar og viðbrögð við henni hafa nú þegar haft aukin áhrif á ferðahegðun fólks segir Icelandair í tilkynningu frá Icelandair og segist félagið hafa fylgst náið með aðstæðum og greint mögulegar sviðsmyndir og mótvægisaðgerðir í ljósi stöðunnar.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu mikið verður dregið úr flugáætlun félagsins, en 3.500 flug eru áætluð í mars og apríl. Endanleg breyting á framboði muni ráðast af því hvernig staðan þróast á næstu dögum og vikum.

Vinna við þessar breytingar sé þegar hafin og uppfærð áætlun félagsins verður birt um leið og hún liggi fyrir. Í kjölfarið verður haft samband við farþega sem þegar eiga bókuð flug með félaginu verði breyting gerð á flugi þeirra. Við þessar aðstæður segir félagið mikilvægi sveigjanlegs leiðakerfis og sterkrar lausafjárstöðu félagsins koma bersýnilega í ljós.

Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair Group segir:

„Það er ljóst að útbreiðsla COVID-19 veirunnar hefur áhrif á ferðaplön viðskiptavina okkar, í það minnsta til skemmri tíma. Eins og við höfum áður sagt, þá gera sveigjanleiki leiðakerfisins og sterk lausafjárstaða félagsins okkur kleift að bregðast hratt við breyttri stöðu á mörkuðum félagsins.

Heilsa og öryggi viðskiptavina og starfsmanna okkar er ávallt forgangsmál og um þessar mundir leggjum við gríðarlega mikla áherslu á reglulega upplýsingagjöf, aukna vöktun og uppfærslu verkferla. Við höldum áfram að fylgjast náið með þróun mála og vinnum náið með yfirvöldum og fylgjum leiðbeiningum þeirra á hverjum tíma.“