Jólaáætlun Icelandair gerir ráð fyrir að flogið verði til ellefu áfangastaða í stað fjögurra núna, en hún er nú komin í sölu og miðast við tímabilið 16. desember til 10. janúar 2021.Bætast Osló, Stokkhólmur, París, Frankfurt, Berlín, New York og Seattle við áætlun félagsins.

Flugáætlunin nú er skráð á heimasíðu félagsins að gildi til og með 29. nóvember, en þar er einungis tvær ferðir í viku til Amsterdam í Hollandi, Boston í Bandaríkjunum og London í Bretlandi auk 6 ferða á viku til Kaupmannahafnar.

Félagið stefnir eins og áður segir að því að auka fjölda áfangastaða og tíðni fluga yfir hátíðirnar miðað við það sem verið hefur undanfarnar vikur, enda margir Íslendingar sem búa erlendis sem kjósa að koma heim yfir jól og áramót.

Í ljósi fyrirkomulags á landamærum hafa sóttvarnaryfirvöld mælt með að fólk komi heim í síðasta 18. desember til þess að eiga möguleika á að vera laus úr sóttkví á aðfangadag.

Í Evrópu stefnir félagið að því að fljúga til og frá Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi, Amsterdam, London, París, Frankfurt og Berlín. Í Norður Ameríku stefnir félagið á flug til og frá Boston, New York og Seattle.

Lofa að leysa úr málum farþega ef áætlanir breytast

Vegna Covid-19 faraldursins hefur flugáætlun allra flugfélaga í heiminum raskast verulega eins og alþekkt en félagið segir að það hafi lagt áherslu á það á undanförnum vikum og mánuðum lagt að koma farþegum sem ætla sér að ferðast á áfangastað, ýmist með breytingu á flugi eða í gegnum önnur flugfélög, án auka kostnaðar.

Farþegum hafi einnig staðið til boða að breyta flugi sínu hvenær sem er án breytingagjalds. Icelandair segist því muni leggja allt kapp á að koma farþegum á áfangastað fyrir jól og áramót.

Þó er tekið fram að aðstæður séu síbreytilegar á mörkuðum félagsins og fari svo að einstaka flug verði fellt niður, verður það tilkynnt með góðum fyrirvara og Icelandair mun leysa úr málum farþega.

„Við finnum fyrir auknum áhuga á flugi yfir hátíðirnar, fyrst og fremst frá Íslendingum sem vilja komast heim og verja jólum og áramótum með sínum nánustu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.

„Það er mikilvægt hlutverk okkar að tryggja góðar samgöngur til og frá landinu og við ætlum að mæta þessari eftirspurn með því að bjóða fleiri áfangastaði og aukna tíðni en við höfum getað boðið upp á undanfarnar vikur. Fari svo að einhverjar breytingar verði á flugáætluninni munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma farþegum okkar á sinn áfangastað.“