Icelandair flutti 183 þúsund farþega í millilandaflugi í marsmánuði og voru þeir 15% fleiri en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Framboðsaukning á milli ára nam 7%. Sætanýting var 82,7% og jókst um 4,4 prósentustig á milli ára og hefur aldrei verið hærri í mars áður.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 23 þúsund í mars sem er fækkun um 4% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 3% samanborið við mars 2014. Sætanýting nam 72,7% og jókst um 0,5 prósentustig á milli ára.

Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 3% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 2% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 0.5% miðað við mars á síðasta ári. Herbergjanýting var 78,8% samanborið við 78,5% í fyrra.