Icelandair flutti 7.502 farþega í október og var sætanýting 35,7%, sem er eins og gefur að skilja mikil breyting frá árinu áður, eða 98% samdráttur í fjölda farþega og lækkun um 49,6 prósentustig í sætisnýtingu.

Flutningastarfsemi félagsins hefur þó líkt og síðustu mánuði dregist mun minna saman en farþegaflug. Fraktflutningar í október drógust saman um 15% á milli ára og hafa dregist saman um 16% það sem af er ári.

Samdrátturinn síðasta árið nemur 81% í fjölda farþega en þeir hafa verið 741.488, og er meðalsætanýting 68,5%. Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningatölum fyrir októbermánuð sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.

1.400 fleiri flugu frá landinu en til

Líkt og í september var farþegaflug í lágmarki í októbermánuði en þær ferðatakmarkanir sem tóku gildi á landamærum á Íslandi í ágúst hafa haft mikil áhrif á eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi. Heildarfjöldi farþega í millilandaflugi hjá Icelandair var um 7.500 í október og dróst saman um 98% á milli ára. Um 3.000 farþegar flugu til Íslands en um 4.300 farþegar frá Íslandi.

Farþegafjöldi í tengiflugi milli Evrópu og Norður Ameríku var áfram í algjöru lágmarki vegna ferðatakmarkana í Norður Ameríku og á ytri landamærum Schengen svæðisins. Heildarframboð hjá Icelandair minnkaði um 96% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugstarfsemi félagsins drógust saman um 74% á milli ára í október en hafa dregist saman um 49% á milli ára það sem af er ári.

Fjöldi farþega hjá Air Iceland Connect var um 6.700 í október og fækkaði um 72% á milli ára. Framboð í innanlandsflugi minnkaði um 62% á milli ára, en sætanýtingin var 52,8%. Ef horft er til farþega í innanlandsflugi síðasta árið hafa þeir verið 111.694, sem er fækkun um 54% milli ára, en sætanýtingin yfir árið var 66,9%.

Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair Group:

„Aðstæður til farþegaflugs hafa verið óbreyttar síðan ferðatakmarkanir voru hertar á landamærum á Íslandi seinnipartinn í ágúst. Síðan þá hefur eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi nánast alveg dregist saman. Við leggjum ríka áherslu á að koma þeim sem vilja, eða þurfa að ferðast, á áfangastað þrátt fyrir takmarkaða flugáætlun. Þá höfum við unnið markvisst að því að viðhalda mikilvægum innviðum og þeim sveigjanleika sem þarf til að vera tilbúin að bregðast hratt við þegar eftirspurn eftir farþegaflugi eykst á ný.“