Næsta sumar mun Icelandair bjóða upp á flug til og frá Akureyri um Keflavíkurflugvöll á ýmsa áfangastaði sína í Evrópu og Bandaríkjunum. Viðskiptavinir bóka flugið og innrita sig alla leið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en flogið verður allt að fjórum sinnum í viku frá 7. júní til 30. september 2012. Icelandair mun leigja Fokker 50 flugvél af systurfyrirtækinu Flugfélagi Íslands til þess að sinna þessu flugi.

Í tilkynningunni kemur fram að brottför frá Akureyrarflugvelli verður klukkan 14.30 og lending á Keflavíkurflugvelli klukkan 15.20. Tímasetningin geri það að verkum að fjölmargir áfangastaðir Icelandair liggja vel við þessu tengiflugi. Brottför frá Keflavíkurflugvelli til Akureyrar er klukkan 16.20 og lending á Akureyri kl. 17.10. Þannig skapist góð tenging við komutíma frá helstu áfangastöðum Icelandair í Evrópu.

„Það er spennandi að bæta Akureyri sem nýjum áfangastað inn í leiðakerfið okkar og tengiflugið sem fer í gegnum Keflavíkurflugvöll. Með þessum hætti erum við að opna nýja leið fyrir ferðamenn frá fjölmörgum öðrum borgum í leiðakerfi okkar til Akureyrar,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair í tilkynningunni.

„Við teljum líka að það séu mikil þægindi fólgin í því fyrir heimamenn og ferðamenn að geta innritað sig alla leið frá flugvellinum á Akureyri. Þannig teljum við að þetta nýja flug geti bæði nýst íbúum Norðurlands sem og erlendum ferðamönnum.”

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri segir Akureyringa fagna allri uppbyggingu í ferðaþjónustu á Íslandi og sérstaklega á Akureyri og Norðurlandi.