Icelandair mun hefja áætlunarflug til og frá Birmingham í Bretlandi í febrúar á næsta ári. Þetta verður fimmti áfangastaður Icelandair í Bretlandi og bætist við London Heathrow, London Gatwick, Manchester og Glasgow. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudögum og mánudögum frá 5. febrúar 2015.

Haft er eftir Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair, í tilkynningu, að Birmingham sé stórt markaðssvæði á milli Manchester og London og ferðamenn þaðan nota alþjóðaflugvöllinn þar mikið.

„Við höfum unnið að undirbúningi flugsins undanfarið ár og ætlum að sækja ferðamenn til Íslands inn á þennan markað, og einnig farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll milli áfangastaða okkar í Norður-Ameríku annars vegar og Bretlandi hins vegar, og styrkja þannig leiðakerfi Icelandair á Norður-Atlantshafinu”, segir hann.