Icelandair hefur ákveðið að hefja heilsársflug til Dublin, höfuðborgar Írlands á næsta ári. Borgin verður fimmtugasti áfangastaðurinn sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu, en að undanförnu hefur félagið kynnt þrjá aðra nýja áfangastaði, Berlín, Cleveland og Dallas. Flugið til Dublin hefst 8. maí 2018 og flogið verður sex sinnum í viku. Sala er þegar hafin.

„Dublin er ágætlega þekkt borg meðal Íslendinga og oft komið til álita hjá Icelandair að hefja beint áætlunarflug þangað“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair í fréttatilkynningu.

„Með stækkun leiðakerfis okkar á undanförnum árum og einkum mikilli fjölgun áfangastaða í Norður-Ameríku sjáum við nú tækifæri til að bæta borginni við hjá okkur, enda mun hún þétta og styrkja tengiflugið til og frá Bandaríkjunum og Kanada.“ Með þessari viðbót verða 30 áfangastaðir í Evrópu og 20 í Norður-Ameríku í leiðakerfi félagsins.

Um Icelandair:

Icelandair hefur verið leiðandi í flugi og ferðaþjónustu á Íslandi í 80 ár. Leiðarkerfi félagsins er hugsað og skipulagt sem tenging á milli meginlands Evrópu og Norður-Ameríku og hefur margfaldast að umfangi frá árinu 2009. Þá voru farþegar um 1,3 milljónir en á þessu ári er gert ráð fyrir að þeir verði rúmlega 4 milljónir.

Icelandair býður upp á yfir 600 klukkustundir af afþreyingu fyrir alla fjölskylduna í sætisbaki og þráðlaust net allt frá því stigið er um borð og þar til komið er í flugstöð á öllum flugleiðum félagsins.