Nú mun flugfélagið Icelandair bjóða upp á beint flug á landsleik Íslands og Englands á EM 2016. Boeing 757 þotu Icelandair verður flogið til Nice í Frakklandi síðdegis sunnudaginn 26. júní, og til baka frá Nice snemma morguns þriðjudaginn 28. júní.

Laus sæti í fluginu verða einungis til sölu á vef Icelandair og verður opnað fyrir söluna kl. 14.30 í dag. Flugið fram og til baka kostar kr. 115.000 með sköttum og gjöldum inniföldum. Í tilkynningu Icelandair segir að einungis sé um flug fram og til baka að ræða, og rétt sé að taka sérstaklega fram að miðar á leikinn eru ekki í boði.

Brottför frá Keflavíkurflugvelli verður kl. 16:30 á sunnudaginn og brottför frá Nice verður að leik loknum klukkan 06:15 og lent á Keflavíkurflugvelli kl. 08:00 að morgni þriðjudags 28. júní.