Tvö af dótturfélögum Icelandair Group hafa gert 3,5 milljarða flugvélaleigusamninga við ísraelska flugfélagið Israir, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Latcharter, lettneskt leiguflugfélag í eigu Loftleiða-Icelandic, dótturfélags Icelandair Group, hefur gert samning við Israir um leigu á tveimur Airbus A320 farþegaflugvélum til þriggja ára. Jafnframt hefur Loftleiðir-Icelandic framlengt leigu á Boeing 767-300ER breiðþotu til sama félags til loka þessa árs. Umfang þessara samninga dótturfélaga Icelandair Group er rúmlega 3,5 milljarðar króna, eða um 50 milljónir dollara.

Airbus vélarnar, sem voru áður í rekstri hjá Air Canada, verða fyrstu Airbus þoturnar sem notaðar eru hjá ísraelskum flugfélögum. Latcharter tekur vélarnar á leigu frá bandaríska flugvélaleigufyrirtækinu KJ Aviation, segir í tilkynningunni.

Loftleiðir eignuðust Latcharter á miðju síðasta ári. Félagið hafði þá tvær Airbus vélar í rekstri, en sá floti tvöfaldast með þessum samningi. Gert er ráð fyrir að floti félagsins vaxi enn frekar á næstunni. Framkvæmdastjóri Latcharter er Garðar Forberg, sem áður starfaði hjá Íslandsflugi og Air Atlanta.

?Samstarf félagsins við Israir hefur nú staðið í þrjú ár og hefur reynst báðum félögum happadrjúgt. Samningurinn um Boeing 767-300ER vélina hefur gengið vel, og því var eðlilegt að samstarfið væri útvíkkað þegar kom að því að endurnýja flota fyrir styttri leiðir félagsins," segir Guðni Hreinsson, framkvæmdastjóri Loftleiða-Icelandic

"Meginmarkmiðið með kaupunum á Latcharter var að breikka vöru- og þjónustuframboð Loftleiða-Icelandic á sviði alþjóðlegra flugvélaviðskipta. Það er ánægjulegt að sjá að þessi stefna okkar er að skila árangri með svo áþreifanlegum hætti.?

Israir er í eigu stærsta fjárfestingafélags í Ísrael, Ganden Group sem á hlut í 15 ísraelskum félögum á sviði flutinga, flugs, tækni og fasteigna.