Icelandair Group Holding hefur gert samning við Glitni um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins, segir í tilkynningu. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands.

Glitnir skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í Kauphöll Íslands, í Icelandair Group Holding (ICEAIR) að lágmarki 500.000 að nafnvirði á gengi sem Glitnir ákveður í hvert skipti.

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Glitnir er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera krónur 150.000.000,- að markaðsvirði.