Framtakssjóður Íslands (FSÍ) er sem fyrr stærsti eigandi Icelandair Group og heldur á um 29% hlut í félaginu eftir hlutafjárútboð sem fram fór fyrir jólin. Sjóðurinn átti rúm 30% áður.
Eins og áður hefur komið fram var töluverð umframáskrift með hluti í Icelandair Group en nýir hlutir voru teknir til viðskipta í upphafi vikunnar. Allir stærstu hluthafar tóku þátt í útboðinu.
Félagið hefur nú birt lista yfir 20 stærstu hluthafa félagsins. Sem fyrr segir er Framtakssjóðurinn stærsti hluthafinn en Íslandsbanki er næst stærsti eigandinn með rúman 20% hlut.
Listinn yfir 20 stærstu hluthafana lítur þannig út:
- Framtakssjóður Íslands 29,01%
- Íslandsbanki hf 20,58%
- Lífeyrissjóður verslunarmanna 9,67%
- Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 4,84%
- Landsbanki Íslands 4,77%
- Glitnir banki hf 4,38%
- Stefnir -- Ís-15 2,10%
- Stafir lífeyrissjóður 2,02%
- Sparisjóðabanki Íslands 1,87%
- Tindar verðbréf 1,45%
- Landssjóður hf. 1,18%
- Stefnir ÍS-5 57. 1,14%
- Sameinaði lífeyrissjóðurinn 1,09%
- Íslandssjóðir hf 0,77%
- Kristinn Hjörtur Jónasson 0,76%
- Stefnir -- Samval 0,74%
- Alnus ehf. 0,66%
- NBI hf. 0,52%
- Icelandair Group 0,51%
- Sigla ehf 0,48%