Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,6% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan tíu í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:45 í 4.488 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en Icelandair Group [ ICEAIR ] er eina félagið sem hefur hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er um 930 milljónir. Þar af eru um 770 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og 80 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ].

Krónan heldur áfram að veikjast og hefur veikst um 0,5% frá því í morgun. Gengisvísitalan stendur nú í 168,9 stigum.