Icelandair Group hf. tilkynnti þann 31. janúar sl. að öll lokaskjöl milli samstæðunnar og lánveitenda hennar væru til staðar í samþykktu formi og aðeins væri beðið eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins vegna sölu á eignum frá samstæðunni til félags í eigu lánveitendanna.

Öll nauðsynleg samþykki liggja nú fyrir og öll skjöl sem tengjast fjárhagslegu endurskipulagningunni hafa verið undirrituð, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Fjárhagslegri endurskipulagningu samstæðunnar er því nú að fullu lokið.

Nánar má sjá um þetta í tengdum fréttum hér til hliðar.