Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air. Kaupin eru m.a. gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Eigendur í Wow air eignast 5,4% í Icelandair fyrir eignarhlutinn, en miðað við gengi Icelandair nú sem er 8 krónur á hvert bréf nemur verðmæti bréfanna tæplega 2.179 milljónum. Félögin verða áfram rekin undir sömu vörumerkjum en sameiginleg markaðshlutdeild þeirra á markaðnum yfir Atlantshafið er um 3,8%.

Sem gagngjald fyrir hlutafé WOW Air munu hluthafar WOW air, að uppfylltum skilyrðum, eignast alls 272.341.867 hluti eða sem samsvarar um 5,4% hlutafjár Icelandair Group eftir viðskiptin. Þar af eru 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5% hlutafjár gagngjald fyrir hið selda hlutafé. Það gagngjald getur hækkað í 4,8% og lækkað í 0,0% út frá ákveðnum forsendum í tengslum við áreiðanleikakönnun.

94.275.347 hlutir eða sem samsvarar 1,8% hlutafjár eru gefin út til seljenda vegna breytingar á víkjandi láni í hlutafé. Seljendur hafa skuldbundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í a.m.k. 6 mánuði og helming hlutanna í a.m.k. 6 mánuði til viðbótar.

Með yfirtökunni skapast tækifæri til sóknar á nýja markaði og auk þess er gert ráð fyrir að einingakostnaður Icelandair Group muni lækka. Félagið verður þannig enn betur í stakk búið til þess að veita erlendum flugfélögum öfluga samkeppni á hinum alþjóðlega flugmarkaði.

Bogi Nils Bogason, starfandi forstjóri Icelandair Group segir: „WOW air hefur á undanförnum árum byggt upp sterkt vörumerki og náð miklum árangri á mörkuðum félagsins, til og frá Íslandi og yfir Atlantshafið,“ segir Bogi.

„Það eru mikil tækifæri til hagræðingar en félögin verða áfram rekin á eigin forsendum undir eigin vörumerkjum og flugrekstrarleyfum. Íslensk ferðaþjónusta er grunnstoð í íslensku  hagkerfi og það er mikilvægt að flugsamgöngur til og frá landinu séu í traustum skorðum.”

Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air segir: „Ég er mjög stoltur af þeim árangri og þeirri uppbyggingu sem við hjá WOW air höfum náð á undanförnum árum og er jafnframt  þakklátur fyrir þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið frá fyrsta degi,“ segir Skúli.

„Við höfum byggt upp öflugt teymi sem hefur náð eftirtektaverðum árangri og verið brautryðjandi í lággjaldaflugi yfir Norður-Atlantshafið. Nú tekur nýr kafli við þar sem WOW air fær tækifæri til að vaxa og dafna með öflugan bakhjarl eins og Icelandair Group sem mun styrkja stoðir félagsins enn frekar í alþjóðlegri samkeppni“.