Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,98% í ríflega 1,1 milljarðs króna viðskiptum. Mestu munar um 3,52% lækkun á gengi bréfa Icelandair, en gengi bréfa HB Granda lækkaði einnig um 1,95% og bréfa TM um 1,27%. Á móti hækkaði gengi bréfa Haga um 1,63% og gengi bréfa N1 um 1,15%.
Í þarsíðustu og síðustu viku þurfti að fella niður tugi flugferða vegna verkfallsaðgerða flugstjóra Icelandair. Lög voru svo sett á aðgerðirnar í síðustu viku. Í gær þurfti svo að fella niður um tíu ferðir og seinka öðrum vegna manneklu. Yfirvinnubann tók gildir hjá flugfreyjum í gærmorgun auk þess sem flugmenn vildu ekki aukavinnu.
Í morgun var svo greint frá því að ekki verði af beinu áætlunarflugi Icelandair til Pétursborgar í Rússlandi í næsta mánuði. Fljúga átti tvisvar í viku. Ferðir í júlí og ágúst eru enn á áætlun.