Hlutabréfaverð í Icelandair Group hefur lækkað um 7,35% í viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag [klukkan 10:28]. Velta með bréfin í dag nemur um 43,6 milljónum króna og viðskipti tólf talsins.

Icelandair Group sendi tilkynningu til Kauphallar í morgun þar sem sagði að gera megi ráð fyrir að tjón félagsins vegna eldgossins í Grímsvötnum verði ekki verulegt og afkomuspá helst óbreytt, ef spár ganga eftir. Samkvæmt núverandi veður- og öskuspám er gert ráð fyrir að flogið verði um Keflavíkurflugvöll í kvöld og samkvæmt áætlun á morgun.