Stærstu lánveitendur Icelandair Group munu breyta skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum.

Heildarhlutafjárhækkun mun þannig nema 2,92 milljörðum nýrra hluta að nafnvirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group þar sem fram kemur að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins sé lokið.

Icelandair Group hf. tilkynnti 14. og 15. júní 2010 að Framtakssjóður Íslands (FSÍ) og Lífeyrissjóður Verzlunarmanna (LV) hefðu gert bindandi samkomulag við félagið þess efnis að sjóðirnir myndu fjárfesta í Icelandair Group hf. fyrir 4 milljarða króna á genginu 2,5.

Í samkomulaginu skuldbatt FSÍ sig til að leggja fram 3 milljarða króna og eignast þar með 1,2 milljarða nýrra hluta í félaginu. LV skuldbatt sig til að fjárfesta í félaginu fyrir 1 milljarð króna og eignast þar með 400 milljónir nýrra hluta í félaginu.

Fram kemur í tilkynningunni að samningarnir hafi verið gerðir með eftirfarandi fyrirvörum: Um jákvæða niðurstöðu áreiðanleikakönnunar á Icelandair Group hf., að Fjármálaeftirlitið (FME) myndi veita Framtakssjóðnum undanþágu frá yfirtökuskyldu á félaginu og að Icelandair Group myndi safna að minnsta kosti einum milljarði króna að markaðsvirði af nýju hlutafé frá öðrum fagfjárfestum.

Búið er að uppfylla alla ofangreinda fyrirvara og fjárfestar hafa í heild skráð sig fyrir 5,5 milljörðum króna að markaðsvirði í nýju hlutafé sem jafngildir 2,2 milljörðum nýrra hluta í Icelandair Group hf.

Icelandair Group hf. fyrirhugar að safna u.þ.b 2,5 milljörðum króna til viðbótar í nýju hlutafé. Tilkynnt verður síðar um fyrirkomulag og tímasetningu þess útboðs.

Þá kemur fram að við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins.