Gengi hlutabréfa Icelandair Group lækkaði um 1,37% í tæplega 170 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta lækkun dagsins. Lækkun einkenndi markaðinn því á sama tíma lækkaði gengi bréfa Haga um 1,16%, TM um 0,93%, Marel um 0,74%, VÍS um 0,59% og Vodafone um 0,55%.

Á hinn bóginn hækkaði gengi bréfa Regins um 0,82% og Eimskips um 0,19%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,54% og endaði hún í 1.123 stigum.