Icelandair Group hefur, í samstarfi við viðskiptabanka sinn Nýja Glitni,  lokið við endurfjármögnun á víxlunum til skamms tíma eða þriggja mánaða.

Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar en samkvæmt henni hefur að undanförnu verið unnið að endurskipulagningu á fjármagnsskipan samstæðunnar og á næstu þremur mánuðum er gert ráð fyrir að ljúka þeirri vinnu.

„Markmið endurskipulagningarinnar er að aðlaga endurgreiðsluferli skulda að greiðslugetu samstæðunnar til lengri tíma,“ segir í tilkynningunni.

Þá er vísað í tilkynningum frá Icelandair Group við ársfjórðungsuppgjör á árinu 2008 en þá var samstæðan með víxla að fjárhæð 2,5 milljarðar króna á gjalddaga þann 23. janúar sl..