Gengi hlutabréfa Icelandair Group hækkaði um 0,77% rúmlega 25 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta hækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi bréfa Marels, sem hækkaði um 0,64% og Haga, sem fór upp um 0,53%.

Önnur hreyfing var ekki á hlutabréfamarkaði.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,24% og nam hækkunin í vikunni 1,75%. Vísitalan lækkaði hins vegar um 3,6% í vikunni á undan og nær viðsnúningurinn því ekki að eyða lækkuninni. Hækkun Úrvalsvísitölunnar nemur 17,6% frá áramótum.