Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,04% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.128,99 stigum. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 1,23% í dag og voru það einu bréfin sem hækkuðu í verði. Hins vegar lækkuðu bréf Fjarskipta um 1,50%, VÍS um 0,49% og Marels um 0,38%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 829 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,24% í viðskiptum dagsins. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,36% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,06%. Velta var með minna móti, en viðskipti með bréf í vísitölunni námu 2,7 milljörðum króna.