Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,27% í dag og endaði í 1753,26 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 6,76% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,49% í viðskiptum sem hljóða upp á 257 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 30,75 krónum á hlut. Gengi bréfa Marel hækkaði þá einnig, eða um 0,60% í 237 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 252,5 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Haga, eða um 0,11% í viðskiptum sem hljóða upp á 226 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 46,7 krónur. Gengi bréfa Regins lækkaði þá einnig, eða um 0,22% í viðskiptum sem hljóða þó aðeins upp á 1,6 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 22,25 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 868 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmlega 5,7 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 0,9 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA stóð í stað í dag í 5,7 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 3,7 milljarða króna viðskiptum.