Icelandair hækkaði mest í viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands. Félagið hækkaði um 2,9% í 152 miljón króna viðskiptum. Þá hækkaði Síminn um 0,67% og Sýn um 0,29%. Alls hækkuðu sex félög í viðskiptum dagsins.

Hlutabréfaverð sjö félaga lækkaði í dag. Mest lækkuðu bréf í Origo eða um 1,57%, Eik um 1,25% og Eimskip um 1,08%.

639 milljóna króna velta var með hlutabréf í Kauphöllinni en 2 milljarða króna velta með skuldabréf.

OMXI10 úrvalsvísitalan hækkaði um 0,19% í viðskiptum dagsins.