Heildarvelta með hlutabréf á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var alls 828 milljónir króna, þar af var mest velta með hlutabréf í Icelandair en félagið hækkaði um 1,47% í 171 milljóna króna viðskiptum í dag.

Aðeins tvö félög hækkuðu í viðskiptum dagsins en auk Icelandair hækkaði Eimskip um 0,24% í 33 miljóna króna viðskiptum.

Alls lækkuðu níu félög í viðskiptum dagsins en mest lækkaði verð á hlutabréfum í Sýn eða um 1,90% í 60 millljóna króna viðskiptum. Næst mest lækkaði verð á hlutabréfum í Eik eða um 1,87% í 52 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala Kauphallarinnar OMXI8 lækkaði um 0,97% í viðskiptum dagsins.