Verð á hlutabréfum í Icelandair hækkaði um 1,49% í 154 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þá hækkuðu verð á hlutabréfum í Arion banka um 1,32% í 262 milljóna króna viðskiptum í dag.

HB Grandi lækkaði um 1,43% í 374 þúsund króna viðskiptum í dag. Þá lækkaði verð á Reitum um 0,12% í 125 þúsund króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala Aðalmarkaðarins hækkaði um 0,31% en heildarveltan á hlutabréfamarkaði nam 592 milljónum í dag.