Verð á hlutabréfum í Icelandair hækkaði um 1,67% í 218 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Næst mest hækkun var hjá Reitum en hún nam 1,08% í 631 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkaði verð á hlutabréfum í Arion banka en lækkunin nam 2,37% í 31 milljónar króna viðskiptum. Næst mest lækkun var hjá Marel en bréfin lækkuðu um 2,23% í 872 milljóna króna viðskiptum.

Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um 0,82% en heildarvelta á aðalmarkaði hlutabréfa nam 3 milljörðum króna.