Verð á hlutabréfum í Icelandair hækkaði um 8,79% í 5 milljóna króna viðskiptum í dag. Næstmest hækkun var hjá Kviku sem hækkaði um 1,75% í 137 milljóna króna viðskiptum. Þá hækkuðu Heimavellir um 1,37% í 222 þúsund króna viðskiptum og Sýn hækkaði um 1,09% í 11 milljóna króna viðskiptum.

Festi lækkaði mest eða um 2,15% í 73 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkaði Reitir um 1,32% í 1 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala Aðalmarkaðarins lækkaði um 0,68% í viðskiptum dagsins en veltan á Aðalmarkaði hlutabréfaviðskipta í dag nam 692,8 milljónum króna.