Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,89% í dag og endaði í 1.230,39 stigum. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um ein 3,11% í gríðarmiklum viðskiptum, en velta með bréf félagsins nam rúmum milljarði króna. Þá hækkaði gengi Haga um 0,77%, Eimskips um 0,54% og Regins um 0,53%. Ekkert félag lækkaði í verði á hlutabréfamarkaði í dag. Velta á hlutabréfamarkaði nam alls 1.411 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,34% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,53% en sá óverðtryggði hækkaði um 9,19%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 4,8 milljörðum króna.