Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 1,21% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.202,66 stigum. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 2,94%, TM um 1,54% og Haga um ,149%. Gengi bréfa VÍS lækkaði um 0,45% en önnur félög á Aðallista annað hvort hækkuðu eða stóðu í stað. Velta á hlutabréfamarkaði nam 1,3 milljarði króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA stóð í stað eftir viðskipti dagsins. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,03% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,08%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam 1,8 milljarði króna.