Gengi hlutabréfa Icelandair í kauphöllinni hafði hækkað um 6,45% í 469 milljóna króna viðskiptum kl. 11 í morgun.

Kemur þessi hækkun í kjölfar uppgjörs á þriðja ársfjórðungi, en eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá þá hagnaðist Icelandair um 62 milljónir dollara á þriðjungnum og dróst saman um 36% frá sama tímabili í fyrra.