Markaðsvirði Icelandair Group hefur hækkað um 7,5 milljarða króna í kauphöllinni frá því að viðskipti hófust í kauphöllinni í morgun.

Þegar þetta er skrifað hefur gengi bréfanna hækkað um 10,33% í 458 milljón króna viðskiptum og er það nú komið upp í 16,55 krónur á hvert bréf.

Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í morgun hækkaði félagið afkomuspá sína fyrir árið úr 150 til 160 milljónir Bandaríkjadala í 165 til 175 milljónir.