Verð á hlutabréfum í Icelandair hækkaði um 2,19% í 123 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Næst mest hækkun var hjá Reginn og nam hækkunin 0,71% í 63 milljóna króna viðskiptum.

Verð á bréfum í TM lækkaði mest í Kauphöllinni í dag og nam hún 1,46% í 54 milljóna króna viðskiptum. Næst mest lækkun var hjá Festi en hún nam 1,27% í 88 milljóna króna viðskiptum.

Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um 0,19% og heildarvelta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar nam 1,7 milljarði króna.