Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,94% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á mörkuðum nam rúmum 5 milljörðum. Þar af var velta á hlutabréfamarkaði rúmir 2 milljarðar og velta á skuldabréfamarkaði tæpir 3 milljarðar.

Gengi bréfa Icelandair Group hækkaði um 2,36% í 307 milljón króna viðskiptum dagsins. Gengi bréfa Össurs hækkaði hlutfallslega mest, eða um 13,64% en í litlum viðskiptum, 8,4 milljónum.

Gengi bréfa Haga lækkaði um 0,37% í tæplega 364 milljón króna viðskiptum. Mest velta var með bréf símans, en gengi bréfa fyrirtækisins hækkaði um 0,63% í 391,5 milljón króna viðskiptum.