Icelandair hóf í morgun áætlunarflug sitt til Genfar í Sviss. Áætlað er að flogið verður til og frá borginni tvisvar í viku til 23. september.

Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair að þau byggi áætlunarflug til Genfar á góðum árangri með áætlunarflug til Zurich í Sviss. „Við erum að auka tíðni þangað í sumar og lengja ferðatímabilið og bætum nú Genf inn til þess að anna þeirri eftirspurn sem við teljum að sé á þessum markaði. Stærstur hluti farþeganna er, eins og við bjuggumst við, ferðamenn á leið í Íslandsferð“, segir Birkir í tilkynningunni.

Á Keflavíkurflugvelli í morgun klipptu fulltrúar farþega og áhafnar Icelandair á borða til að marka upphaf áætlunarflugsins. Á myndinni eru Sigurvin Einarsson , flugstjóri og Ómar Magnússon, flugmaður, auk flugfreyjanna Söru Reginsdóttur, Ingu Hugborgar Ómarsdóttur, Kristínar Sigurðardóttur og flugþjónsins Andra Kristins Ágústssonar. Farþegarnir heita Callagy Ross og Tori Scarzello.