Icelandair, dótturfélag FL Group, hefur ekki áhuga á samstarfi við Finnair, segir forstjórinn Jón Karl Ólafsson í samtali við finnska dagblaðið Taloussanomat.

FL Group á 6,2% hlut í Finnair og gengi bréfa félagsins hefur hækkað síðustu mánuði vegna væntinga um að íslenskir fjárfestar geri tilraun til að kaupa Finnair.

Straumur-Burðarás á rúmlega 10% hlut í Finnair, en finnska ríkið er stærsti hluthafinn í félaginu.