Icelandair hóf í gær áætlunarflug til og frá Gatwick flugvellinum í London. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudagsmorgnum og sunnudagskvöldum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en félagið flýgur tvisvar á dag, þ.e. 14 sinnum á viku, til London Heathrow og mun halda því áfram.

„Heathrow er okkar aðalflugvöllur í London og verður það áfram. Vinsældir hans eru hinsvegar miklar í alþjóðaflugi og ekki möguleiki að fá fleiri lendingarleyfi þar. Til þess að bregðast við aukinni eftirspurn ákváðum við að hefja flug á Gatwick", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í tilkynningunni.

„Gatwick mun gefa okkur kost á frekari vexti í London, sem er ekki til staðar á Heathrow, auk þess sem mörg samstarfsfélaga okkar í tengiflugi innan Evrópu og á fjarmörkuðum í Asíu eru öflug á flugvellinum, svo sem British Airways. Þá náum við inn á nýja markaði fyrir tengiflug okkar til Norður-Ameríku með viðkomu á Íslandi."

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair og Matthew Wood, framkvæmdastjóri Gatwick flugvallar klippa á borða til merkis um fyrsta flugið ásamt stöðvarstjórum Icelandair, Angie Condon og Jenný Waltersdóttur.

© Aðsend mynd (AÐSEND)